Nýr bíll hjá Slökkviliði Ísafjarðarbæjar

Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri, við nýja bílinn.
Sigurður A. Jónsson, slökkviliðsstjóri, við nýja bílinn.

Miðvikudaginn 1. september fékk Slökkvilið Ísafjarðarbæjar afhentan nýjan bíl af gerðinni Iveco 4x4 Fast Response. Bíllinn er sérútbúinn til að geta athafnað sig í jarðgöngum og er með svo kölluðu One-Seven froðukerfi sem er nýjasta gerðin á markaðnum. Einnig eru einnig innbyggðir loftbankar fyrir alla í bílnum og rafhlöðudrifinn björgunarbúnaður til að opna bílflök.

Í bílnum er pláss fyrir fimm slökkviliðsmenn og verður farið á honum í öll útköll sem berast slökkviliðinu, hvort sem þau eru vegna elds, reyks eða umferðaslyss.