Minningarstund á Flateyri sunnudaginn 26. október

Sunnudaginn 26. október 2025 eru liðin 30 ár frá snjóflóðinu sem féll á Flateyri árið 1995.

Af því tilefni er boðið til minningarstundar í Flateyrarkirkju kl. 15:00.

Séra Fjölnir Ásbjörnsson leiðir stundina og heimamenn sjá um tónlistarflutning.

Að minningarstund lokinni verður boðið upp á kaffi og meðlæti í Samkomuhúsinu.