Miðbær Ísafjarðar: Drög að deiliskipulagi
Á fundi skipulags- og mannvirkjanefndar sem haldinn var miðvikudaginn 13. maí síðastliðinn, voru lögð fram til kynningar, drög að deiliskipulagi fyrir Miðbæ Ísafjarðar, unnið af ráðgjöfum Verkís ehf. fyrir Ísafjarðarbæ.
Markmið og áherslur
Markmið deiliskipulagsins er að móta stefnu um uppbyggingu og ásýnd miðbæjar Ísafjarðar með sterk tengsl við sögusvæðisins, í samræmi við áherslur gildandi aðalskipulags og stefnu bæjarstjórnar. Markmiðið er einnig að umferðaröryggi verði bætt og göngu-og hjólahæfi byggðarinnar aukið. Byggð og umferðarleiðir verði varðar fyrir ágangi sjávar.
Áherslur í skipulagsvinnunni eru:
Gæði byggðar
Líflegur miðbær
Göngu-og hjólaleiðir
Útivist
Tengsl við hafnarsvæðið og söguna
Sérkennifái notið sín
Fjölbreytt starfsemi og búseta
Sjóvarnir
Skipulagsvinnan og ferlið
Árið 2023 ákvað bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar að ráðast í breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Ísafjarðar til að bæta ásýnd miðbæjarins og auka framboð lóða. Skipulagskynningin var kynnt í maí og júní sama ár. Málið var að mestu í biðstöðu árið 2024 en janúar til apríl 2025 var farið í greiningarvinnu og mat á valkostum og í júlí sama ár, fjallaði skipulags-og mannvirkjanefnd um valkostina og lagði til útfærslu í deiliskipulagi. Síðan þá hafa drög að skipulagi verið í vinnslu hjá ráðgjöfum og kynnt núna í maí.
Þróun svæðis og fólksfjöldi
Fólksfækkun var í Ísafjarðarbæ frá því fyrir síðustu aldamót og fram til 2017 en síðan þá hefur verið talsverð fólksfjölgun. Nú er því aukin eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði, sérstaklega minni íbúða og er áfram gert ráð fyrir fólksfjölgun.
Bætt ásýnd Eyrarinnar
Nú er tækifæri til að bæta ásýnd og byggja upp á lítið nýttum svæðum. Byggingarreitir í deiliskipulaginu liggja nær Pollinum en áður, þar sem kostur er. Þannig er dregið úr vægi einsleitra svæða með stórum bílastæðum og umferðarleiðum sem einkenna svæðið í dag og fyllt inn í eyðurnar með mögulegum nýbyggingum.
Íbúðir og þjónusta
Rými skapast fyrir líflegt bryggjuhverfi með góðu útsýni við Bátahöfn með tilfærslu Pollgötunnar.
Deiliskipulagið mun fjölga íbúðum um rúmlega 130 og einnig myndast svigrúm fyrir aukna verslun og þjónustu.

Umferð og bílastæði
•Bættar umferðaleiðir og umferðaröryggi fyrir gangandi og hjólandi
•Skilgreindar hjólaleiðir um Hafnarstræti og Aðalstræti
•Göngu-og hjólaleið meðfram sjóvörnum við Pollgötu og um Bátahöfn
•Ferðamönnum er beint á betur skilgreindar umferðaleiðir við Pollgötu og Bátahöfn
•Fjöldi bílastæða í samræmi við nýbyggingar –ákvæði um lágmarksfjölda sett í deiliskipulagi
•Bæta má nýtingu núverandi bílastæða

Gönguleiðir eru sýndar með appelsínugulum línum og hjólaleiðir með bláum línum. Bleikar línur sýna göngu-og hjólaleiðir
Bryggjur og útivist
Gert er ráð fyrir nýjum bryggjum þar sem Edinborgarbryggja og Bæjarbryggja voru áður gert svigrúm fyrir viðlegu minni báta. Þannig aukast tengsl við miðbæinn, sem laðar að fólk. Aðgengi að sjó og útivist verður bætt með gönguleiðum og bryggjum. Teiknað er upp útivistarsvæði/dvalarsvæði á lítilli landfyllingu utan við Pollgötu og einnig er möguleiki á sandfjöru utan við Pollgötu

Sjóvarnir
Sjóvarnargarður verður færður utar og göngustígur gerður meðfram Pollgötu. Bryggjur og sandfjara nyrst í Pollinum munu draga úr ágangi sjávar. Í framhaldinu þarf síðan að skoða aðrar lausnir, svo sem þvergarð, hólma og fljótandi varnir innar í Pollinum
Næstu skref
Nú þegar drögin eru komin, verður ráðist í skuggagreiningu og gerðar ásýndarmyndir. Einnig verður farið í frekari greiningu á umferðarleiðum og umferðaröryggi. Samráð verður haft við íbúa og aðra hagaðila á öllum stigum málsins.
Gert er ráð fyrir að kynning vinnslutillögu geti farið út haustið 2026 og gildistaka nýs deiliskipulags verði vorið 2027.
Ísafjarðarbær hvetur íbúa til að kynna sér þessi drög og senda inn ábendingar á skipulag@isafjordur.is.