Málefni skemmtiferðaskipa í Ísafjarðarbæ

Hádegisfundur í húsakynnum Vestfjarðastofu þriðjudaginn 19. mars kl. 12. Á fundinum verður farið í nokkur mál er varða móttöku skemmtiferðaskipa í Ísafjarðarbæ.

  • Ný stefna Ísafjarðarbæjar í móttöku skemmtiferðaskipa – Arna Lára Jónsdóttir bæjarstjóri
    Ísafjarðarbær hefur unnið að mörkun stefnu um móttöku skemmtiferðaskipa og mun Arna Lára fara yfir þá vinnu og innihald stefnunnar.
  • Skipasumarið 2024 – Hilmar Lyngmó hafnarstjóri Ísafjarðarhafna
    Fjölmörg skemmtiferðaskip munu heimsækja Ísafjörð á sumri komanda. Hilmar mun fara yfir helstu línur auk þess að fara yfir hvernig skráningu er háttað á síðu Ísafjarðarbæjar.
  • Sumarviðburðasjóður hafna Ísafjarðarbæjar – Starfshópur um sjóðinn kynnir
    Verið er að opna fyrir umsóknir í nýjan sumarviðburðasjóð hafna Ísafjarðarbæjar sem hvetja á til viðburðahalds í tengslum við komur skemmtiferðaskipa. Kynning á sjóðnum og umsóknarferli.

Öll eru velkomin á fundinn. Léttar hádegisveitingar í boði.