Lokað fyrir umferð á hluta Æðartanga frá 16. ágúst

Lokað verður fyrir umferð á Æðartanga á Ísafirði að morgni miðvikudagsins 16. ágúst, þar sem gera á klárt fyrir malbikunarvinnu sem fer fram síðar í ágúst.

Lokað verður frá gatnamótum Æðartanga og Ásgeirsgötu, við Húsasmiðjuna, að Æðartanga 10. Hjáleið er um Suðurtanga.