Lífshlaupið 2024: Hvatning til þátttöku

Íbúar og starfsfólk Ísafjarðarbæjar eru hvött til þátttöku í Lífshlaupinu sem hefst þann 7. febrúar 2024.

Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra landsmanna. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.

Lífshlaupið er ótrúlega skemmtilegur og góður vettvangur fyrir þá sem vilja byrja að hreyfa sig eða hreyfa sig nú þegar reglulega og vilja skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirlit og setja sér markmið. En auk þess að hvetja til hreyfingar daglega þá skapar verkefnið skemmtilega stemningu á heimilum, vinnustöðum og í skólum sem keppa sín á milli og innanhúss. Aðalmarkmiðið er að fá sem flesta til að hreyfa sig sem oftast á meðan á keppninni stendur.

Hægt er að taka þátt í:

  • Vinnustaðakeppni frá 7. - 27. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (þrjár vikur)
  • Framhaldsskólakeppni frá 7. - 20 febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
  • Grunnskólakeppni frá 7. - 20. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
  • Hreystihópar 67+ frá 7. - 27. febrúar, (þrjár vikur)

Skráning fer fram á www.lifshlaupid.is. Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en fínar leiðbeiningar má finna hér og svo hér á ensku.

Minnt er á Lífshlaups-appið þar sem mun einfaldara er að skrá alla hreyfinguna sína þegar maður er komin í lið.

Ísafjarðarbær hvetur alla bæjarbúa og vinnustaði bæjarins til að taka þátt í þessu skemmtilega átaki.