Leggja til að fara í útboð á fjölnota knattspyrnuhúsi

Meirihluti nefndar um byggingu fjölnota knattspyrnuhúss leggur til að farið verði í útboð á fjölnota knattspyrnuhúsi á Ísafirði. Miðað við núverandi tímasetningu og að útboð fari af stað sem fyrst telur meirihluti nefndarinnar líklegast að hafist verði handa við byggingu hússins sumarið eða haustið 2020 og það klárist um áramót 2020/2021.

Hlutverk nefndarinnar var að yfirfara þarfagreiningu og tillögur að þeim knattspyrnuhúsum sem skoðuð hafa verið með tilliti til hugmynda að skipulagi í kringum áætlaðan byggingarstað. Samkvæmt skýrslu sem nefndin hefur lagt fram til kynningar í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar ætti húsið að nýtast til fjölbreyttrar íþrótta- og tómstundaiðkunar, bylting verði í möguleikum til æfinga í knattspyrnu og einnig muni húsið henta fyrir viðburðahald af öðrum toga.

Þá var það einnig hlutverk nefndarinnar að gera tillögu til bæjarstjórnar um staðarval, hönnun, byggingu, útboð og hugsanlega áfangaskiptingu verksins ásamt kostnaðaráætlun. Meirihluti nefndarinnar telur íþróttasvæðið á Torfnesi henta best fyrir fjölnota knattspyrnuhús, ekki síst vegna tengingar við önnur íþróttamannvirki sem eru á svæðinu fyrir en einnig vegna nálægðar við leikskóla, Hlíf, menntaskóla og grunnskóla.

Kostnaðaráætlanir fyrir mismunandi stærðir knattspyrnuhúss voru fengnar frá verkfræðistofunni Verkís en síðar var einnig samið við Ríkiskaup um ráðgjöf við innkaupaferlið til að fá ítarlegri upplýsingar um verð. Niðurstöður markaðskönnunar á evrópska efnahagssvæðinu sýndu að hægt væri að ná umtalsvert betra verði en áætlanir Verkís sögðu til um. Út frá þeirri niðurstöðu var tekin ákvörðun um að halda áfram samstarfi við Ríkiskaup um að útbúa útboðsgögn. 

Meirihluti nefndarinnar leggur til að óskað verði eftir 50x70 metra einangruðu og upphituðu húsi. Samkvæmt tillögu verður boðið út á evrópska efnahagssvæðinu með skilyrðum um hámarksverð að upphæð 380.000.000 kr. og að húsinu verði skilað fullbúnu. Lagt er til að í útboðinu verði ákveðin skilyrði um útbúnað, svo sem geymslu, lýsingu, gervigras, hlaupabraut og fleira, en einnig að hægt verði að bjóða í valkvæða eiginleika, svo sem hljóðkerfi, áhorfendabekki og klifurvegg.

Kristján Þór Kristjánsson, formaður nefndarinnar, fagnar að verkefninu sé lokið og hægt verði að fara í útboð á húsinu. Vinnan hafi verið viðamikil og kostir skoðaðir fram og til baka. „Verkefnið tók nýja og betri stefnu þegar Ríkiskaup komu að því en reynsla þeirra kom að góðum notum við vinnuna. Það er trú okkar í meirihluta nefndarinnar að mjög skynsamleg leið sé valin sem tryggi að hægt sé að byggja hús sem er eins og best verður á kosið en er á sama tíma vel innan marka fjárhagsáætlunar Ísafjarðarbæjar.“

Auk Kristjáns skipa nefndina þau Sif Huld Albertsdóttir og Sigurður Jón Hreinsson.