Laus lóð í Tunguhverfi – Ártunga 6

Lóðin við Ártungu 6 í Tunguhverfi á Ísafirði er laus til úthlutunar.

Umsóknir berist í gegnum þjónustugátt Ísafjarðarbæjar.

Í samræmi við grein 1.1. í lóðarúthlutunarreglum Ísafjarðarbæjar er 10 daga umsóknarfrestur um lóðina. Berist fleiri en ein umsókn um sömu lóð ræður hlutkesti úthlutun.

Ártunga 6
Lóð undir einbýlishús. Stærð lóðar: 864 m².
Lóðagrunnur

Berist engar umsóknir um tiltekna lóð færast þær á lóðalista Ísafjarðarbæjar og verður þá úthlutað til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar, líkt og kveður á um í grein 1.3 í lóðarúthlutunarreglum.