Kynningarfundur vegna landfyllingar norðan Skutulsfjarðareyrar

Ísafjarðarbær býður til kynningarfundar fyrir íbúa og aðra hagsmunaaðila þar sem kynnt verður vinnslutillaga breytinga á Aðalskipulagi Ísafjarðarbæjar 2008-2020 vegna fyrirhugaðrar landfyllingar norðan Skutulsfjarðareyrar. 

Fundurinn verður haldinn á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði fimmtudaginn 15. september 2022 og hefst klukkan 20. Á fundinum verða fulltrúar Verkís, kjörinna fulltrúa og bæjaryfirvalda.

Markmið aðalskipulagsbreytingarinnar er að auka byggingarland fyrir íbúðir á Ísafirði. Landfyllingin verður norðan Skutulsfjarðareyrar, nánar tiltekið frá Norðurtanga að Eyrargötu 2-4.

Fyrirhugað er að nýta efni í landfyllinguna sem fellur til vegna dýpkunar við Sundabakka á Ísafirði.

Aðalskipulagsbreytingin er unnin í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021. Fyrirhuguð landfyllingin er undir 5 ha að umfangi er því ekki háð mati á umhverfisáhrifum framkvæmda. Aðalskipulagsbreytingin felur ekki í sér landnotkun sem kallar á mat á umhverfisáhrifum framkvæmda.

Vinnslutillagan er aðgengileg á uppdrætti og greinargerð með forsendum breytinga ásamt umhverfismati, í afgreiðslu á bæjarskrifstofum Ísafjarðarbæjar og hér fyrir neðan.

Hægt er að senda inn athugasemdir vegna vinnslutillögunnar til og með 30. september. Athugasemdir skulu berast á netfangið skipulag@isafjordur.is

Vinnslutillaga til kynningar (ferli skipulagstillögu má sjá á bls. 2)

Uppdráttur