Kynningarfundir um félagsþjónustu og félagsstarf aldraðra
10.10.2025
Fréttir
Í seinni hluta október og byrjun nóvember býður velferðarsvið Ísafjarðarbæjar upp á kynningarfundi um þá félagsþjónustu og félagsstarf fyrir aldraða sem sveitarfélagið býður upp á.
Þingeyri
Dags. og tími: 20. október kl. 14-15
Staðsetning: Tjörn
Suðureyri
Dags. og tími: 27. október kl. 14-15
Staðsetning: Sunnuhlíð
Súðavík
Dags. og tími: 3. nóvember kl. 14-15
Staðsetning: Álftaver
Flateyri
Dags. og tími: 10. nóvember kl. 14-15
Staðsetning: Bryggjukaffi
Fundirnir eru öllum opnir og er vonast til að sem flestir sem málið varðar sjái sér fært að mæta. Heitt á könnunni!