Kristjana Dröfn Valgeirsdóttir ráðin sem leikskólastjóri á Sólborg
Kristjana Dröfn Valgeirsdóttir hefur verið ráðin sem leikskólastjóri á leikskólanum Sólborg á Ísafirði og mun hún hefja störf frá og með 15. júní næstkomandi.
Kristjana lauk stúdentsprófi af hagfræði- og tölvubraut frá Menntaskólanum á Ísafirði 2003. Árið 2008 lauk hún B.Ed. prófi í leikskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands 2008 og hlaut í kjölfarið leyfisbréf sem leikskólakennari.
Kristjana hefur yfirgripsmikla reynslu af störfum í leikskóla og er öllum hnútum kunnug á leikskólanum Sólborg. Hún hóf fyrst störf á leikskólanum 2003 sem leiðbeinandi og starfaði þar sem slíkur til 2005. Síðan 2008 hefur hún svo unnið sem deildarstjóri á Sólborg við góðan orðstír.
Við óskum Kristjönu til hamingju með nýtt starf og bjóðum hana hjartanlega velkomna til áframhaldandi starfa í nýju hlutverki.