Komur skemmtiferðaskipa 2019

Listi yfir komur skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar hefur nú verið birtur á undirvefnum port.isafjordur.is, en hann er hluti af samræmdu kerfi hafna og annarra aðila sem standa að móttöku skemmtiferðaskipa á Íslandi. Ekkert lát virðist vera á vinsældum svæðisins því boðaðar hafa verið 128 komur skipa næsta sumar.