Kjörstjórnarmenn óskast í allar kjördeildir

Hæfisreglur. Mynd: Stjórnarráðið.
Hæfisreglur. Mynd: Stjórnarráðið.

Ísafjarðarbær óskar eftir fólki til að taka að sér setu í kjörstjórnum. Aðal- og varamenn vantar í allar kjördeildir.

Vegna strangari hæfisreglna fyrir kjörstjórnarfulltrúa með nýjum kosningalögum þarf að finna nýja einstaklinga í stað þeirra kjörstjórnarmanna sem vanhæfir eru vegna tengsla við frambjóðendur.

Þau sem áhugasöm eru geta haft samband við formann yfirkjörstjórnar, Díönu Jóhannsdóttur, á netfangið diana@vestfirdir.is, með upplýsingum um nafn, símanúmer og kennitölu.  

Greitt er fyrir setu í kjörstjórn.