Jólatré og mögulegar tendranir

Unnið er að því þessa dagana að setja upp jólatré bæjarins. Þar sem enn er óvíst hvort hægt verði að boða til formlegra tendrana hefur verið ákveðið að ljósin verði tendruð á trjánum um leið og þau eru sett upp svo íbúar geti notið jólaljósanna alla aðventuna.

Ef samkomutakmarkanir verða rýmkaðar allverulega við næstu endurskoðun verður boðið til tendrana með hefðbundnum hætti eftirfarandi daga:

5. desember: Flateyri
6. desember: Suðureyri

12. desember: Torgsala og tendrun á Ísafirði
13. desember: Þingeyri

Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur.