Íþrótta- og leikjanámskeið Ísafjarðarbæjar sumar 2026
Íþrótta- og leikjanámskeið Ísafjarðarbæjar hefjast 8. júní. Námskeiðin verða þrjú talsins og eru fyrir öll börn fædd 2016-2019.
Íþróttaskóli Ísafjarðarbæjar stendur fyrir leikjanámskeiði fyrir börn sem eru að ljúka 1.-4. bekk eftirfarandi dagsetningar:
8.-12. júní, verð 6.500 kr.
15.-19. júní, verð 5.200 kr.
22.-26. júní, verð 6.500 kr.
Dagskráin samanstendur af fjölbreyttri útivist og hreyfingu. Námskeiðin fara fram alla virka daga frá kl. 9:00–12:00. Vistun er í boði frá kl. 8:30 án skipulagðrar dagskrár.
Skipt er upp í hópa eftir aldri, 1.-2. bekkur og 3.-4. bekkur eru saman. Í vikunni 15.-19. júní eru 3.-4. bekkur í golfi í Tungudal.
Skráning og nánari upplýsingar um námskeiðið er á Abler.
Rétt er að taka fram að öll eru velkomin á íþrótta- og leikjanámskeið Ísafjarðarbæjar.
Nánari upplýsingar veitir Lára Ósk Albertsdóttir, yfirþjálfari, netfang: laraa@isafjordur.is.