Ísafjörður: Truflun á vatni í efri bænum

Nú síðdegis fimmtudaginn 4. janúar verður truflun á vatni í efri bænum á Ísafirði, nánar til tekið á Hjallavegi, Hlíðarvegi, Engjavegi, Urðarvegi, Seljalandsvegi, Miðtúni, Sætúni og Stakkanesi, vegna viðgerðarvinnu. Áætlað er að vinnan taki um þrjá klukkutíma.

SMS hefur verið sent til íbúa í ofantöldum götum í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.