Ísafjörður: Tímabundin lokun fyrir umferð í Fjarðarstræti

Vegna viðgerð á leka í vatnslögn í Fjarðarstræti þarf að loka götunni milli Fjarðarstrætis 32 og 35 (milli Mjallargötu og Mánagötu) frá kl. 10 í dag, miðvikudaginn 4. nóvember. Lokunin hefur einnig áhrif á umferð út frá Mjallargötu og Mánagötu, frá Mjallargötu verður ekki hægt að komast upp Fjarðarstræti og frá Mánagötu lokast fyrir umferð niðureftir.

Áætlað er að viðgerðarvinna taki tvo daga.