Ísafjörður og Flateyri: Lokað fyrir vatn þriðjudaginn 11. maí

Vegna viðgerða verður lokað fyrir vatnið í Holtahverfi á Ísafirði frá kl. 8:30-10:30 og á Túngötu og niður eyrina á Flateyri frá kl. 11:30-14:00 í dag, þriðjudaginn 11. maí.

Uppfært kl. 13:15: Vegna bráðaviðgerðar þarf að loka fyrir vatnið á allri Flateyri. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessu fylgir.