Ísafjörður: Mögulegar lokanir í sundlaug og íþróttahúsum

Vegna fyrirhugaðra verkfallsaðgerða aðildarfélaga BSRB biðjum við íbúa að hafa í huga að komið gæti til þess að lokað verði í Sundhöll Ísafjarðar og íþróttahúsi við Austurveg til klukkan 15 mánudaginn 9. mars og þriðjudaginn 10. mars. Opið verður eins og venjulega eftir klukkan 15. Sömuleiðis yrði lokað í íþróttahúsinu á Torfnesi frá klukkan 8-16 þessa sömu daga.

Lokanirnar muna að mestu hafa áhrif á íþrótta- og sundkennslu en nánar má lesa um áhrif verkfallsins á skólastarf við Grunnskólann á Ísafirði á vef skólans.