Ísafjörður: Lokað fyrir vatn á Seljalandsvegi og Urðarvegi miðvikudaginn 14. maí

Uppfært kl. 11: Mögulega eru einnig truflanir á vatni eða vatnslaust á Urðarvegi 1-30.

Vegna bilunar í vatnslögn verður lokað fyrir vatnið á Seljalandsvegi 48-84a og Urðarvegi 31-80 á Ísafirði í dag, miðvikudaginn 14. maí, kl. 10-17.

SMS hefur verið sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.

Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.