Ísafjörður: Lokað fyrir vatn á gömlu Tungnaveitu

 

Lokað verður fyrir vatnið á gömlu Tungnaveitu í dag, 3. ágúst 2023, kl. 15, vegna viðgerðarvinnu. Áætlað er að viðgerðarvinna standi yfir í tvo til þrjá klukkutíma.

Lögnin sem loka þarf er með þeim eldri í kerfinu og því ekki alveg ljóst hvaða byggingar verða vatnslausar. Þetta hefur þó einkum áhrif á Bræðratungu, Seljaland, innri hluta Seljalandsvegar (frá húsi nr. 86) og Grænagarð.