Ísafjörður: Lokað fyrir vatn á Engjavegi og Seljalandsvegi 2-30

Lokað verður fyrir vatnið á Engjavegi öllum og Seljalandsvegi 2-30 á Ísafirði í dag, mánudaginn 27. október, kl. 13-16. Lokunin er vegna tengivinnu.

SMS hefur verð sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.

Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.