Ísafjörður: Lokað fyrir umferð í Aðalstræti frá Skipagötu
Lokað verður fyrir umferð bíla um Aðalstræti á Ísafirði, frá gatnamótum við Skipagötu niður fyrir Edinborgarhús, miðvikudaginn 4. mars.
Ástæða lokunarinnar er lagnavinna, en þó verður ekki þörf á að taka vatn af húsum á þessu svæði.
Vinnan er þó tafsöm og ekki stefnt að því að opna aftur fyrir umferð fyrr en að kvöldi fimmtudags 5. mars. Íbúar og aðrir vegfarendur eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
SMS hefur verð sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.
Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.