Ísafjarðarbær á samfélagsmiðlum

Ísafjarðarbær leggur áherslu á að miðla upplýsingum með skýrum og aðgengilegum hætti. Samfélagsmiðlar eru mikilvægur hluti af þeirri upplýsingamiðlun og þar geta íbúar fylgst með því sem er efst á baugi í sveitarfélaginu.

Á samfélagsmiðlum birtast meðal annars fréttir af þjónustu sveitarfélagsins, framkvæmdir, viðburðir, auglýsingar um laus störf, tilkynningar og annað efni sem varðar daglegt líf í sveitarfélaginu.

Nýverið hefur Ísafjarðarbær einnig hafið miðlun efnis á TikTok þar sem lögð er áhersla á stutt og aðgengileg myndbönd sem sýna fjölbreytta starfsemi sveitarfélagsins og kynna störf, verkefni og þjónustu.

Við hvetjum íbúa til að fylgja Ísafjarðarbæ á samfélagsmiðlum til að fá nýjustu upplýsingar beint í sinn miðil.

Fylgdu okkur hér: