Ísafjarðarbær í 30 ár; Myndband

1. júní 2026 eru liðin 30 ár frá stofnun Ísafjarðarbæjar þegar að sex sveitafélög sameignuðust undir merki Ísafjarðarbæjar. 

Í tilefni af 30 ára afmæli Ísafjarðarbæjar hefur verið gefið út nýtt afmælismyndband sem varpar ljósi á samfélagið, mannlífið og þá fjölbreyttu starfsemi sem einkennt hefur sveitarfélagið í gegnum árin.

Í myndbandinu má sjá svipmyndir úr daglegu lífi, menningu, náttúru og atvinnulífi sveitarfélagsins ásamt því að horft er til þeirrar þróunar sem átt hefur sér stað frá sameiningu sveitarfélaganna árið 1996.

Í tilefni af afmælinu hefur verið sett saman fjölbreytt afmælisdagskrá með viðburðum fyrir íbúa og gesti á öllum aldri.

Myndbandið er hluti af þeirri dagskrá og er ætlað að fanga stemningu samfélagsins, sögu þess og þann kraft sem býr í fólkinu sem þar lifir og starfar.

Horfa má á myndbandið á YouTube-síðu Ísafjarðarbæjar