Íbúar geta nú sótt sólmyrkvagleraugu

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur á vestanverðu Ísland í tilefni af því býður Ísafjarðarbær íbúum upp á sólmyrkvagleraugu, ein gleraugu á hvern íbúa. 

Gríðarlega mikilvægt er að nota öryggisvottuð sólmyrkvagleraugu þegar horft er á sólmyrkva. Þannig er hægt að koma í veg fyrir augnskaða. Á þeim stutta tíma sem tunglið hylur sólina að fullu í almyrkvanum er hins vegar óhætt að horfa án gleraugna. Um leið og fyrstu geislar sólar sjást aftur þarf að setja gleraugun strax upp.

Íbúar eru hvattir til að sækja gleraugun með góðum fyrirvara og kynna sér tímasetningar myrkvans.

Hægt er að nálgast sólmyrkvagleraugu á eftirfarandi stöðum:

  • Sundlaugunum í sveitarfélaginu
  • Bókasafninu á Ísafirði
  • Bæjarskrifstofunni í Stjórnsýsluhúsinu

Gleraugun verða afhent til og með 3. júlí, á opnunartíma viðkomandi staða. Eftir 3. júlí má nálgast gleraugun á Bæjarskrifstofu í Stjórnsýsluhúsinu. 

Við hvetjum alla til að njóta þessa einstaka náttúruviðburðar á öruggan hátt og passa vel upp á gleraugun svo þau veiti sem besta vörn við áhorfið.

Nánar á Almyrkvi á sólu 2026

Upplýsingar um tímasetningu sólmyrkva í Ísafjarðarbæ

Nákvæmar tímasetningar sólmyrkvans má finna á þessari síðu: Hvar sést almyrkvinn 12. ágúst, 2026? | Sólmyrkvi 2026

Ísafjörður

Atburður

 

Tími

Gleraugu

Deildarmyrkvi hefst

16:43:17

Almyrkvi hefst

17:44:06

Nei

Almyrkvi í hámarki

17:44:52

Nei

Almyrkva lýkur

17:45:37

Deildarmyrkva lýkur

18:43:57

Hnífsdalur

Atburður

Tími

Gleraugu

Deildarmyrkvi hefst

16:43:13

Almyrkvi hefst

17:44:02

Nei

Almyrkvi í hámarki

17:44:47

Nei

Almyrkva lýkur

17:45:32

Deildarmyrkva lýkur

18:43:52

Suðureyri

Atburður

Tími

Gleraugu

Deildarmyrkvi hefst

16:43:01

Almyrkvi hefst

17:43:47

Nei

Almyrkvi í hámarki

17:44:40

Nei

Almyrkva lýkur

17:45:33

Deildarmyrkva lýkur

18:43:49

Flateyri

Atburður

Tími

Gleraugu

Deildarmyrkvi hefst

16:43:09

Almyrkvi hefst

17:43:55

Nei

Almyrkvi í hámarki

17:44:48

Nei

Almyrkva lýkur

17:45:41

Deildarmyrkva lýkur

18:43:57

Þingeyri

Atburður

Tími

Gleraugu

Deildarmyrkvi hefst

16:43:27

Almyrkvi hefst

17:44:14

Nei

Almyrkvi í hámarki

17:45:08

Nei

Almyrkva lýkur

17:46:01

Deildarmyrkva lýkur

18:44:16