Íbúar geta fylgst með loftgæðum í rauntíma
Ísafjarðarhöfn hefur um árabil fylgst með loftgæðum í Skutulsfirði með loftgæðamælum. Mælarnir voru upphaflega settir upp vegna umferðar skemmtiferðaskipa um fjörðinn.
Mælingar sýna að þrátt fyrir að útblástur frá skipum geti stundum verið vel sýnilegur hefur hann almennt ekki haft teljandi áhrif á loftgæði. Þau skipti sem loftgæði hafa versnað að einhverju marki hafa einkum verið þegar gosmóða frá eldgosum hefur borist vestur um land.
Nú geta íbúar og aðrir áhugasamir fylgst með loftgæðum í rauntíma á þremur mælistöðum í sveitarfélaginu; á Sundabakka, Ásgeirsbakka og í Holtahverfi.
Þegar kortið opnast er hægt að smella á hvern mæli til að sjá nánari upplýsingar um loftgæði á viðkomandi stað. Hægt er að stilla hvernig gögnin eru birt á kortinu sjá hér að neðan.
Fylgjast má með loftgæðum hér
Stillingar á gögnum á loftgæðasíðu
Smellið á tannhjólið
Þá opnast gluggi þar sem hægt er að velja tíðni mælinga.
