Íbúafundur á Ísafirði í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri og í Súgandafirði

Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ og lögreglustjórinn á Vestfjörðum boða einnig til íbúafundar á Ísafirði í kjölfar snjóflóðanna á Flateyri og í Súgandafirði þann 14. janúar 2020.

Fundurinn fer fram í fundarsal á fjórðu hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði og hefst klukkan 17 þriðjudaginn 21. janúar. 

Fundarstjóri verður Rögnvaldur Ólafsson frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra.

Dagskrá:

  1. Ávarp bæjarstjóra
  2. Snjóflóðin 14. Janúar 2020. Tómas Jóhannesson, fagstjóri hjá Veðurstofu Íslands
  3. Skipulag áfallahjálpar. Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Ísafjarðarbæjar
  4. Umræður

Á fundinum verða auk bæjarstjóra og fulltrúa lögreglustjórans á Vestfjörðum fulltrúar frá eftirfarandi aðilum:

  • Ofanflóðasjóði
  • Heilbrigðisstofnun Vestfjarða
  • Rauða krossi Íslands
  • Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra
  • Umhverfisstofnun
  • Svæðisstjórn björgunarsveita Slysavarnafélagsins Landsbjargar