Hvatning til þátttöku í Lífshlaupinu 2026
Íbúar og starfsfólk Ísafjarðarbæjar er hvatt til þátttöku í Lífshlaupinu sem hefst þann 1. febrúar 2026.
Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Embættis landlæknis um hreyfingu hvort sem er í frítíma, vinnu, skóla eða við val á ferðamáta. Í ráðleggingunum segir að börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst 60 mínútur daglega og fullorðnir ættu að stunda miðlungserfiða hreyfingu í minnst 30 mínútur daglega.
Nú er um að gera að taka þátt og hvetja fólkið í kringum þig til þess að taka þátt í Lífshlaupinu 2026!
Lífshlaupið er skemmtilegur og góður vettvangur fyrir þau sem vilja byrja að hreyfa sig eða hreyfa sig nú þegar reglulega og vilja skrá hreyfinguna markvisst, hafa yfirlit og setja sér markmið. Auk þess að hvetja til hreyfingar daglega skapar verkefnið skemmtilega stemningu á heimilum, vinnustöðum og í skólum sem keppa sín á milli og innanhúss. Aðalmarkmiðið er að fá sem flesta til að hreyfa sig sem oftast á meðan á keppninni stendur.
Þú getur tekið þátt í:
- Vinnustaðakeppni frá 1. - 28. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (fjórar vikur)
- Framhaldsskólakeppni frá 1. - 28. febrúar, fyrir 16 ára og eldri (tvær vikur)
- Grunnskólakeppni frá 1. - 28. febrúar, fyrir 15 ára og yngri (tvær vikur)
- Hreystihópar 67+ frá 1. - 28. febrúar, (fjórar vikur)
Skráning fer fram á www.lifshlaupid.is. Skráningarferlið er einfalt og þægilegt en ef fólk lendir í vandræðum eru leiðbeiningar á íslensku og leiðbeiningar á ensku.
Minnt er á Lífshlaups-appið þar sem mun einfaldara er að skrá hreyfinguna sína.
Ísafjarðarbær hvetur alla íbúa og vinnustaði sveitarfélagsins til að taka þátt í þessu skemmtilega átaki.