Hvað má og hvað má ekki – nýir leiðarvísar fyrir ferðafólk skemmtiferðaskipa

Mynd: John Chardine, Hurtigruten Expedition
Mynd: John Chardine, Hurtigruten Expedition

Ísafjarðarbær er eitt sjö sveitarfélaga á Íslandi sem hefur þróað staðbundna leiðarvísa til þess að bæta móttöku ferðamanna, ekki síst gesta á skemmtiferðaskipum.

Leiðarvísarnir veita gestum hjálpleg tilmæli áður en komið er á hvern stað. Þeir innihalda ábendingar um hvert sé best að fara og ráð um hvernig eigi að vera tillitsamur gestur. Meðal annars hvetur leiðarvísirinn gesti til að njóta bæjarins og landslagsins, en láta gróður, dýr og menningararf ósnortna. Gestum er bent á að um að biðja um leyfi áður en þeir taka myndir af bæjarbúum, og að gægjast ekki inn um glugga. Leiðarvísirinn bendir einnig á áhugaverða staði og gönguleiðir.

Það var AECO, The Association of Arctic Expedition Cruise Operators, sem hélt utan um vinnuna við gerð leiðarvísanna en efnið í bæklingnum fyrir Ísafjörð var m.a. unnið upp úr upplýsingum sem komu fram á íbúafundi um framtíðarskipan komu skemmtiferðaskipa

Fyrsti, og hingað til eini, staðbundni leiðarvísirinn á Íslandi var þróaður af bæjarbúum á Seyðisfirði árið 2019. Aðalheiður Borgþórsdóttir, sem þá var bæjarstjóri á Seyðisfirði, var þá með skýr skilaboð varðandi leiðarvísirinn: „Þessi aukning í komum skemmtiferðaskipa hefur valdið áhyggjum hjá bæjarbúum, þess vegna var svo gott að boða bæjarbúa á fund og vinna þessar leiðbeiningar í sameiningu. Það gekk mjög vel. Leiðarvísirinn hjálpar okkur að fræða gestina sem koma til Seyðisfjarðar“.

Staðbundnir leiðarvísar eru verkfæri sem þróað var árið 2017 af samtökunum Cruise Iceland, Visit Greenland, Visit Svalbard, The Northen Norway Tourist board og AECO með fjármagni frá Norræna Atlantssamstarfinu (NORA). Þessir samstarfsaðilar þróuðu almennan leiðarvísi fyrir svæðin á N-Atlantshafi, sem og skapalón fyrir staðbundna leiðarvísa. Fyrsti staðbundni leiðarvísirinn leit svo dagsins ljós í Longyerbyen, Svalbarða, árið 2018. Þá var hafist handa við að þróa staðbundna leiðarvísa á fleiri stöðum, en í allt urðu til 12 staðbundnir leiðarvísar árið 2018 og 2019 á Svalbarða, Grænlandi, Kanada og Noregi.

Gyða Guðmundsdóttir, sérfræðingur í samfélagsþáttöku hjá AECO, með áherslu á Ísland, segir að markmið útgerða svo kallaðra leiðangursskipa (e. excursion cruises) sé að vinna að því að byggja upp gott samband við bæjarbúa. „Það er ánægjulegt að sjá góð samskipti og samvinnu milli bæjarfélaga og fyrirtækja í leiðangurssiglingum. Það er svona sem við tryggjum að leiðangursskipin séu velkomin í dag, og til frambúðar. AECO hefur innleitt margar leiðbeiningar, staðla og verkfæri til þess að tryggja umhverfisvænar, öruggar og tillitssamar leiðangurssiglingar á Íslandi. Þar má nefna rakningu skipa, mat á starfsfólki um borð og eftirlit, auk þess að þróa staðbundna leiðarvísa á Svalbarða, Grænlandi, Kanada og Noregi. Það er frábært að sjá fleiri bæjarfélög á Íslandi taka þetta verkfæri í notkun og gera að sínu. Það er einnig mikilvægt að nefna öll þau bæjarfélög sem þróað hafa leiðarvísa hafa ákveðið að þær séu ekki aðeins fyrir gesti á skemmtiferðaskipum, heldur fyrir allt það ferðafólk sem heimsækir bæinn.“

Leiðarvísir fyrir Ísafjörð

Aðra staðbundna leiðarvísa og aðrar leiðbeiningar má finna á heimasíðu AECO.