Hundahreinsun 4. og 5. nóvember

Árleg hundahreinsun verður í áhaldahúsinu á Ísafirði frá kl. 16-18 mánudaginn 4. nóvember og þriðjudaginn 5. nóvember.

Engrar tímapöntunar er þörf, eigendur mæta bara með hunda sína og fá þá hreinsaða. Hundahreinsun er innifalin í leyfisgjaldi til Ísafjarðarbæjar og er skorað þá sem eiga eftir að ganga frá skráningu að gera það hið fyrsta.

Hægt er að skrá hunda í gegnum rafrænan Ísafjarðarbæ eða með eyðublaði.