Hrönn Garðarsdóttir ráðin í starf skólastjóra á Suðureyri

Hrönn Garðarsdóttir hefur verið ráðin sem skólastjóri við Grunnskólann á Suðureyri og mun hún taka til starfa í byrjun ágúst.

Hrönn lauk námi frá Háskólanum á Akureyri árið 2006 með B.Ed. gráðu í leikskólafræðum og er með leyfisbréf sem leikskóla- og grunnskólakennari. Hún lauk M.Ed. gráðu í uppeldis- og menntunarfræðum, með áherslu á sérkennslufræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Hún starfaði sem deildarstjóri við leikskólann Stekkjarás frá 2005 til 2011, starfaði sem sérkennari við Setbergsskóla og Hraunvallaskóla 2011 til 2014 og sem deildarstjóri í Setbergsskóla 2014 til 2016. Frá 2016 hefur hún svo starfað sem umsjónar- og sérkennari í Hraunvallaskóla.

Hrönn er fædd og uppalin á Flateyri og kveðst hlakka til þess að flytja aftur vestur í heimahagana.

Við bjóðum Hrönn hjartanlega velkomna til starfa.