Hátíðahöld á 17. júní 2021

Líkt og á síðasta ári verða hátíðahöld á Ísafirði á þjóðhátíðardaginn mun minni í sniðum en venjulega. Dagskráin miðar sem fyrr að því að stórir hópar safnist ekki saman á einum stað en íbúar eru þó hvattir til að draga fána að húni, fara í sparifötin og gera sér glaðan dag.

Dagskrá á Ísafirði

11:00 Hátíðarmessa í Ísafjarðarkirkju
13:00-15:00 Ratleikur í boði Körfuknattleiksdeildar Vestra. Upplýsingar á söluborði við Silfurtorg.
14:00 Hátíðardagskrá á Silfurtorgi, kynnir er Pétur Ernir Svavarsson

  • Lúðrasveit TÍ leikur fyrir gesti, stjórnandi Madis Mäekalle
  • Hátíðarræða, Jónas Þór Birgisson
  • Hátíðarkór, stjórnandi Tuuli Rähni
  • Ávarp fjallkonu

14:00 Barnaleikrit á sjúkrahústúninu

  • Kómedíuleikhúsið sýnir leikritið Dimmalimm sem er án efa eitt ástsælasta ævintýri þjóðarinnar. Sagan er eftir listamanninn Mugg frá Bíldudal. Ævintýrið fjallar um prinsessuna Dimmalimm sem eignast góðan vin sem er stór og fallegur svanur. En eins og í öllum góðum sögum þá gerist eitthvað óvænt og ævintýralegt.

Þá verður Körfuknattleiksdeild Vestra með söluborð við Silfurtorg og uppi á sjúkrahústúni.

Dagskrá á Hrafnseyri

13:00-13:45 Hátíðarguðþjónusta 
14:15 Setning Þjóðhátíðar

Tónlist: Bergþór Pálsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði.
Hátíðarræða: Elísabet Jökulsdóttir, rithöfundur.

15:00 Háskólahátíð í tilefni útskriftar vestfirskra háskólanemenda. Kynnir er prófessor Guðmundur Hálfdanarson.

Opnun myndlistarsýningar sumarsins eftir myndlistarkonuna Önnu Júlíu Friðbjörnsdóttur.

Kaffiveitingar á meðan hátíð stendur.

Rútuferð, Ísafjörður – Hrafnseyri, fólki að kostnaðarlausu.

Rútan fer frá Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 11:30
Rútan fer frá Hrafnseyri kl. 17:00 
Vinsamlegast hafið samband við reception@uwestfjords.is eða í síma 450 3040 til að skrá ykkur í rútu.

Kaffi og afmælisterta í boði Hrafnseyrar verður á meðan á dagskrá stendur fram til kl. 17:00. Einnig verður hægt að kaupa súpu með brauði.