Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa söluhús til leigu sumarið 2026
Hafnir Ísafjarðarbæjar auglýsa til leigu söluhús fyrir ferðaþjóna og sölufólk. Söluhúsin verða staðsett á torginu við gönguleið frá Sundabakka að miðbæ Ísafjarðar, við rútustæði skemmtiferðaskipa.
Húsin eru sex talsins, hvert þeirra er 4,3 m2 að stærð og með tengingu við rafmagn. Leigutíminn er frá 15. maí til 15. september 2026. Leiguverð er kr. 58.500 á mánuði, eða kr. 234.000 alls fyrir tímabilið. Rafmagn er innifalið í leiguverðinu og verður reikningur sendur mánaðarlega sumarið 2026.
Leigutakar skuldbinda sig til að hafa opið í söluhúsinu þá daga sem farþegafjöldi fer yfir 2.000 manns, annars að vild. Upplýsingar um farþegafjölda má finna á skipadagatali.
Umsóknarfrestur er til 10. mars næstkomandi. Umsóknum skal skilað í tölvupósti á netfangið hofn@isafjordur.is. Í umsókn skal koma fram:
- Nafn
- Kennitala
- Heimilisfang
- Upplýsingar um fyrirhugaðan rekstur í söluhúsinu
Verði eftirspurn meiri en framboð verður dregið úr þeim umsóknum sem berast.
Nánari upplýsingar veitir hafnarstjóri í síma 450 8081 eða í netfanginu hofn@isafjordur.is.

Rútustæði skemmtiferðaskipa við Sundabakka.