Grenndargámar fyrir málma, gler og textíl

Nýir grenndargámar hafa verið settir upp á Flateyri, Ísafirði, Suðureyri og Þingeyri þar sem tekið er á móti þremur úrgangsflokkum: Málmum, gleri og textíl.

Málmar

  • Í málmagáminn fara meðal annars umbúðir úr málmi, sprittkertabikarar og málmlok af krukkum.
  • Til að tryggja sem besta endurvinnslu er mikilvægt að skola allar matarleifar úr málmumbúðum.
  • Allt efni á að fara laust í tunnuna ekki í lokuðum pokum
  • Ekki má setja raftæki, gaskúta eða kolsýruhylki í þennan flokk. Gaskútar og kolsýruhylki kunna að bera skilagjald og má skila þeim á flestar bensínstöðvar og til gasdreifingaraðila.
  • Skilagjaldsskyldar málmumbúðir, þ.e. gos- og bjórdósir, má skila í Vesturafl á Ísafirði eða í söfnunargáma björgunarsveita.

Gler

  • Í glergáminn má meðal annars setja flöskur, glerumbúðir og krukkur (takið málmlok af).
  • Ílát þurfa að vera tóm og hrein.
  • Allt efni á að fara laust í tunnuna ekki í lokuðum pokum
  • Setjið lok og tappa með málmum eða plasti eftir því sem við á.
  • Í þennan flokk má ekki setja postulín, keramik eða önnur steinefni.
  • Skilagjaldsskyldum glerumbúðum má skila í Vesturafl á Ísafirði eða í söfnunargáma björgunarsveita.

Textíll

  • Textíllinn sem settur er í textílgámana fer í endurvinnslu og er ekki flokkaður til frekari endurnýtingar.
  • Textíll þarf ekki að vera heill.
  • Mikilvægt er að textíll sé í lokuðum pokum.

Staðsetningar

Við íþróttahúsið á Flateyri (sjá á korti)

Á Landsbankaplaninu á Ísafirði (sjá á korti)

Við Grunnskólann á Suðureyri (sjá á korti)

Við húsnæði Björgunarsveitarinnar Dýra á Þingeyri (sjá á korti)

Við Bónus á Ísafirði (sjá á korti)

Gámarnir verða að sjálfsögðu tæmdir reglulega en ef íbúar taka eftir að þeir eru fullir má senda ábendingu á sorphirda@isafjordur.is