Gott að eldast: Ísafjarðarbær valinn til að taka þátt í þróunarverkefni

Mynd: www.stjornarradid.is
Mynd: www.stjornarradid.is

Ísafjarðarbær, ásamt Bolungarvíkurkaupstað, Súðavíkurhrepp, Tálknafjarðarhrepp, Vesturbyggð og Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, tekur þátt í þróunarverkefni sem gengur út á að samþætta félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk í heimahúsum. Alls taka 22 sveitarfélög og sex heilbrigðisstofnanir um allt land þátt í verkefnunum, sem er skipt upp á sex svæði.

Þróunarverkefnin eru hluti af aðgerðaáætluninni Gott að eldast en með henni taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Markmið þróunarverkefnanna er að finna góðar lausnir á samþættingu félags- og heilbrigðisþjónustu fyrir eldra fólk og flétta vandlega saman þá þætti sem ríkið sér annars vegar um og hins vegar sveitarfélögin.

Verkefnin eru skilgreind til fjögurra ára á grunni aðgerðaáætlunar Gott að eldast.

Nánar má lesa um verkefnin á vef Stjórnarráðsins