Góður tími til að snyrta gróður á lóðamörkum

Garðyrkjustjóri Ísafjarðarbæjar hvetur garðeigendur í Ísafjarðarbæ til að huga að gróðri við lóðamörk og klippa trjágróður frá stéttum og stígum þannig að allir komist ferða sinna án hindrana.

Gróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur þrengt að umferð og nauðsynlegri þjónustu á göngustígum, gangstéttum og götum og dregið úr öryggi vegfarenda. Umferðarmerki þurfa að sjást vel og gróður má ekki byrgja götu- og stígalýsingu eða hindra snjómokstur.

Samkvæmt byggingareglugerð er það á ábyrgð garðeigenda að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ Einnig er kveðið á um hið sama í lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar.