Garðeigendur hvattir til að snyrta gróður á lóðarmörkum vegna umferðaröryggis

Garðyrkjustjóri Ísafjarðarbæjar hvetur íbúa til að huga að gróðri við lóðamörk og snyrta tré og runna sem teygja sig út yfir stéttar og stíga þannig að allir komist ferða sinna án hindrana. Nú er góður tími til að klippa flesta tegundir gróðurs, þó mikilvægt sé að fara varlega í mikla klippingu á birki.

Gróður sem vex út fyrir lóðarmörk getur þrengt að umferð og nauðsynlegri þjónustu á göngustígum, gangstéttum og götum og dregið úr öryggi vegfarenda. Umferðarmerki þurfa að sjást vel og gróður má ekki byrgja götu- og stígalýsingu eða hindra snjómokstur. Nú þegar vorið er komið og börn farin að verja meiri tíma úti í leik er sérstaklega mikilvægt að gönguleiðir séu greiðfærar og sýn góð svo allir komist örugglega leiðar sinnar.

Samkvæmt byggingareglugerð er það á ábyrgð garðeigenda að halda gróðri innan lóðarmarka. Þar segir „Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa eða runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götu, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.“ Einnig er kveðið á um hið sama í lögreglusamþykkt Ísafjarðarbæjar.