Gámar fyrir garðúrgang komnir á sína staði

Það hefur kannski ekki beint viðrað vel til garðvinnu undanfarna daga en sumarið kemur á endanum og þá er gott að vita af því að sérstakir gámar fyrir garðúrgang eru aðgengilegir í öllum kjörnum Ísafjarðarbæjar.

Staðsetningar gámanna eru:

Flateyri:
Á hafnarsvæði.
Hnífsdalur:
Við félagsheimilið.
Ísafjörður:

Gámur er staðsettur inni á gámasvæði Funa en einnig er gámur fyrir utan girðingu sem hægt er að nota þegar afgreiðsla er lokuð.
Suðureyri:
Við Klofning.
Þingeyri:
Við höfnina, þar sem gámabíllinn stoppar venjulega.

Mikilvægt er eingöngu sé settur garðaúrgangur í gámana.