Frítt í sund í Ísafjarðarbæ þann 17. febrúar

Miðvikudaginn 17. febrúar býður Ísafjarðarbæ, ásamt sveitarfélögum um allt land, frítt í sund sem aukaskammt af G-vítamíni dagsins sem er „hreyfðu þig daglega“.

G-vítamín á þorra er verkefni Geðhjálpar þar sem sendar eru út daglegar ráðleggingar í 30 daga sem ætlað er að bæta geðheilsu. G-vítamínið er byggt á Geðorðunum 10 og 14 lífsorðum Héðins Unnsteinssonar og Þórdísar Rúnarsdóttur. 

Nánar um verkefnið

Listi yfir laugar sem bjóða frítt í sund