Staða framkvæmda vegna myglu í Grunnskólanum á Ísafirði

Eins og fram hefur komið greindist mygla í þremur kennslustofum Grunnskólans á Ísafirði í byrjun maí sl. Þegar myglugreining lá fyrir var hafist handa við að rýma umræddar stofur og nemendum og kennurum fundin önnur pláss til að klára skólaárið. Í minnisblaði frá Axel Rodriguez Överby, sviðsstjóra umhverfis- og eignasviðs, kemur fram að í framhaldinu voru menguð byggingarefni hreinsuð, t.a.m. múr, einangrun og lögn í gólf að innan, ásamt því að veggir að utan voru hreinsaðir með háþrýstiþvotti og laus múr fjarlægður. Rýmin voru innsigluð með plasti og útsogi komið fyrir í stofum til þess að mynda undirþrýsting í álmunni svo mygluagnir myndu ekki berast um skólann.

Í minnisblaðinu kemur einnig fram að eftir að byggingarhlutar voru opnaðir hafi sú ályktun verið dregin að frágangur við smíði skólans hafi ekki verið skv. þeim kröfum sem gerðar eru í dag, a.m.k. ekki m.t.t. frágangs við steypu og járnabindingu. Á meðfylgjandi mynd sést hvernig járnabinding hefur ekki verið nægjanlega djúpt í steypunni og víða staðið upp úr og hulin með múrkápu. Raki hefur komist að járnum og oxun hafist, sem í framhaldi hefur valdið þenslu og sprengt múrinn.

Umfang skemmda er töluvert og fyrirséð að skipta þarf út öllum gluggum og glerjum í bæði á suður og norðurgafli. Ástand barnaskólans að utan er slæmt, víða má sjá sprungur, eldri viðgerðir og það sem hefur verið áhlaðandi síðustu ár. Til þess að koma mannvirkinu í viðunandi ástand er talið grundvallaratriði að þétta húsið að utan.

Helstu forgangsmál eru að:

  • Fjarlægja ónýta glugga og gler
  • Fara í steypuviðgerðir m.t.t. járnabindingar
  • Þétta sprungur að utan og innan
  • Endurnýja gler og glugga
  • Múra hús að utan
  • Skipta út gólfdúkum

Minnisblaðið var lagt fyrir bæjarráð á 1199. fundi og óskað eftir heimild ráðsins að vinna málið áfram. Í bókun bæjarráðs kemur fram að bæjarstjóra var falið að vinna málið áfram í samræmi við minnisblaðið sem og að vinna kostnaðaráætlun og leggja fyrir bæjarráð.