Fræðslunefnd þakkar skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki leik- og grunnskóla

Fulltrúar í fræðslunefnd Ísafjarðarbæjar vilja þakka skólastjórnendum, kennurum og öðru starfsfólki leik- og grunnskóla sveitarfélagsins, fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf í þeim erfiðu aðstæðum sem upp eru komnar í sveitarfélaginu. Það er eftirtektavert hversu fumlaust gengið hefur verið til verks við að halda úti skólastarfi á sem farsælastan hátt fyrir nemendur og foreldra. Við vitum að á þessum tíma sem óvissan er ríkjandi er krefjandi að halda uppi skipulögðu starfi og markvissu námi. Allt starfsfólk skóla sveitarfélagsins hefur lagst á eitt við að skapa samfellu í námi og leik barnanna auk þess að gæta fyllsta öryggis og starfa eftir þeim fyrirmælum sem komið hafa frá Almannavörnum.
Við sendum ykkur okkar bestu kveðjur inn í páskana.