Fótbolta- og hlaupaveisla í borginni í næstu viku

Mynd: KSÍ
Mynd: KSÍ

Vestri mætir Val í úrslitaleik bikarkeppni karla í fótbolta á Laugardalsvelli föstudaginn 22. ágúst og hvetur Ísafjarðarbær alla Vestfirðinga nær og fjær til að fjölmenna og styðja liðið til sigurs.

Miðasala hefst mánudaginn 18. ágúst á miðasöluvef KSÍ.

Á leikdegi hefjast hátíðahöld á félagssvæði og í veislusal Þróttar í Laugardalnum kl. 15. Þar verður líf og fjör með veitingum, skemmtiatriðum, hoppuköstulum, andlitsmálningu og ýmsu öðru skemmtilegu fyrir alla aldurshópa.

Fylgjast má með nýjustu fréttum og upplýsingum á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Vestra.

Daginn eftir, laugardaginn 23. ágúst, fer Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fram þar sem fjölmargir Vestfirðingar eru skráðir til leiks. Einhverjir þeirra hlaupa til styrktar vestfirskum góðgerðarfélögum, svo sem fyrir Krabbameinsfélagið Sigurvon og Styrktarsjóð Katrínar Bjarkar. Þá hleypur hlaupahópurinn Kærleikur að vestan fyrir Minningarsjóð Bryndísar Klöru.

Ísafjarðarbær sendir þessum hlaupurum sérstakar stuðningskveðjur og vonar að þeir íbúar sem verða á svæðinu mæti og hvetji hlauparana áfram.