Forðumst stíflur – notum klósettið rétt
Starfsfólk þjónustumiðstöðvar Ísafjarðarbæjar verður reglulega vart við hluti í fráveitukerfinu sem eiga alls ekki heima þar. Dömubindi, túrtappar, blautþurrkur, eyrnapinnar, bleyjur, matarleifar og annar úrgangur sem hafa valdið stíflum, skemmdum á búnaði og auknum kostnaði við rekstur fráveitukerfisins.
Slíkur úrgangur getur einnig stíflað heimalagnir og valdið tjóni hjá húseigendum, sem getur leitt til kostnaðarsamra viðgerða og óþæginda.
Í salernið á aðeins að fara:
- Klósettpappír.
- Það sem kemur frá líkamanum.
Allt annað á að fara í ruslafötuna, jafnvel þótt á umbúðum standi að varan sé „niðurbrotshæf“ eða „megi fara í klósettið“. Margar slíkar vörur brotna ekki nógu hratt niður og geta safnast saman í lögnum og dælustöðvum.
Með því að setja rusl í ruslafötuna í stað salernisins getum við öll dregið úr hættu á stíflum, minnkað viðhaldskostnað og stuðlað að öruggari og áreiðanlegri fráveitu.
Ísafjarðarbær hvetur íbúa til að hjálpa til við að vernda fráveitukerfið með einföldum en mikilvægum hætti. Það sem fer í klósettið endar ekki bara „einhvers staðar“ – það fer í gegnum allt fráveitukerfið og hefur áhrif á rekstur þess.