Flateyri: Sundlaug og íþróttahúsi lokað tímabundið

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna verður íþróttamiðstöð og sundlaug Flateyrar lokað tímabundið frá og með 27. ágúst. Opnað verður aftur eins fljótt og kostur gefst og verður upplýst um það hér á síðunni og á Facebook-síðu Ísafjarðarbæjar

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Grétar Helgason, forstöðumaður íþróttamannvirkja