Flateyri: Lokað fyrir vatn á Brimnesvegi og Öldugötu
Uppfært kl. 15:15: Viðgerð er nú lokið en í ljós kom leki á lögn sem þarf að laga um leið og varahlutur berst. Því verður aftur lokað fyrir vatnið á Brimnesvegi og Öldugötu kl. 19-21 í kvöld.
Vegna bilunar þarf að loka fyrir vatnið á Brimnesvegi og Öldugötu á Flateyri kl. 11, miðvikudaginn 27. ágúst. Ekki er vitað hve lengi verður lokað fyrir vatnið en gera má ráð fyrir því að það verði eitthvað fram eftir degi.
SMS hefur verð sent til íbúa í gegnum kerfi 1819.is. Skilaboðin sendast eingöngu til þeirra sem eru með skráð símanúmer og heimilisfang hjá 1819 og því þurfa þau sem óska eftir að fá send upplýsingaskeyti að sjá til þess að skráning sé til staðar.
Til að skrá númer þarf að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum á 1819 og velja Mín skráning undir Minn aðgangur. Þar er hægt að setja inn eða uppfæra símanúmer og heimilisfang.