Flateyri: Fundur með Ofanflóðasjóði

Ofanflóðasjóður boðar til fundar í samkomuhúsinu á Flateyri þann 3. maí næstkomandi kl. 17.00, til að kynna varnarmannvirki sem áætlað er að bjóða út fljótlega.

Kynnt verður hvaða mannvirki eiga að rísa, hugmyndir að mótvægisaðgerðum og tekið við spurningum og þeim svarað.

Dagskrá:

  • Inngangur — Hafsteinn Pálsson, Ofanflóðasjóði

  • Hönnun varna — Jón Skúli Indriðason, Eflu

  • Landslagshönnun — Aðalheiður Kristjánsdóttir, Landmótun

 

Fundarstjóri: Gylfi Ólafsson, formaður bæjarráðs Ísafjarðarbæjar