Ferli umhverfisvottunar EarthCheck

Eins og fram hefur komið (1, 2) eru sveitarfélögin á Vestfjörðum með umhverfisvottun EarthCheck, sem er eina umhverfisvottunarþjónustan sem býður úttektir og vottun fyrir sveitarfélög.

Þann 8. nóvember 2012 tóku sveitarfélögin á Vestfjörðum ákvörðun um að gerast aðilar að EarthCheck. Fjórðungssamband Vestfirðinga sá um utanumhald verkefnisins og unnu þær skýrslur sem þurfti til að fá vottun. Í júlí 2019 tók Náttúrustofa Vestfjarða við verkefninu í reynslu í eitt og hálft ár eða til loka desember 2020.

Í nýlegri frétt hjá Náttúrustofunni er farið stuttlega yfir ferlið sem sveitarfélög þurfa að fylgja til að fá og halda vottuninni. Þar kemur fram að sveitarfélögin þurfi að setja fram stefnu og framkvæmdaáætlun sem fylgt er eftir með visthæfari innkaupum, sparnaði í vatnsorku og pappírsnotkun, með því að verja hluta tekna til náttúruverndar og félagsþjónustu og fleira.

Í umhverfisvottuninni er byggt á öllum stoðum sjálfbærrar þróunar: Umhverfisvernd, heilbrigðu hagkerfi, s.s. hringhagkerfi og verslun í heimabyggð, og félagslegu jafnræði, til dæmis að karlar og konur fái svipuð völd, hljóti sivpaða þjónustu, börn lifi við öryggi og aldraðir séu ekki afskiptir. Sveitarféögin þurfa að sýna fram á, með tölulegum gildum, að þeim fari fram ár frá ári. Til dæmis að sorpumfang minnki, meiri flokkun eigi sér stað, að eldsneyti sé sparað og að ekki séu notuð eiturefni t.d. á skordýr eða illgresi.

Árið 2020 fékkst síðast umhverfisvottun og mega allir starfsmenn sveitarfélaganna nota sérstaka undirskrift til að sýna umhverfisvottun sveitarfélagsins.

Hér má skoða framkvæmdaáætlun fyrir árin 2020-2025, en hún er endurskoðuð árlega.