Félagsheimilið á Þingeyri endurbætur

Í vetur hafa staðið yfir endurbætur á Félagsheimilinu á Þingeyri en sú vinna hófst síðastliðið vor þegar gólfplata var steypt. Í október var útveggur við senu klæddur til að fyrirbyggja viðvarandi leka sem hafði valdið skemmdum á klæðningu og leitt til þess að bleyta rann niður á gólf í miklum rigningum árið 2021. Samhliða því var skipt um rennur á húsinu og snjógildrur settar upp.

Í desember var öllum gluggum hússins, alls ellefu talsins, skipt út og í janúar lauk uppsetningu opnanlegra faga og frágangi. Í febrúar var svo ráðist í frekari innanhússframkvæmdir þar sem veggir og loft voru máluð og harðviðarparkett lagt á salinn og sviðið.

 

Þrátt fyrir framkvæmdir hefur starfsemi hússins haldið áfram af krafti. Þar hafa meðal annars verið haldin hjónaböll, jólaböll og þorrablót. Þó enn séu nokkrir lausir endar í vinnslu má segja að breytingarnar hafi gjörbreytt aðstöðunni.

Félagsheimilið á Þingeyri fagnar 87. starfsári á þessu ári, en húsið var tekið í notkun árið 1939. Líf og starf hefur einkennt húsið í gegnum árin og heldur það áfram að gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu.

Sérstakar þakkir fær Eiríkur Eiríksson fyrir sinn stuðning og velvild.

 

Lesa má frétt á facebook síðu félagsheimilisins um framkvæmdirnar.