Eyrarskjól – Viðbygging og endurbætur

Ísafjarðabær Hafnarstræti 1, Ísafirði. kt: 540596-2639 óskar eftir tilboðum í eftirfarandi byggingarframkvæmd: Leikskólinn Eyrarskjól, 400 Ísafirði. - Viðbygging og endurbætur. Nýbygging er 187 m² og nýr tengigangur er 70 m². Verkið felur einnig í sér endurinnréttingu hluta núverandi húss, eldhúshluta, stærð  þess rýmis er ca. 110 m². Heildarstærð byggingar eftir stækkun er um 690 m².